KATA OG ÓSKAR
27.04.2008 11:55:01 / katadk

Smá Hlé...

....gott fólk, við ætlum að taka smá hlé á þessari bloggsíðu og færum okkur inn á barnalandsíðuna hjá skvísunni.....http://www.barnaland.is/barn/66090/

Það verður þó kannski eitthvað inn á þessari síðu í framtíðinni.......ekki gleyma okkur alveg8)8)..........og ef ykkur vantar lykilorðið inn á barnaland þá bara senda okkur línu;);)

Kata, Óskar og ?????? ??? Óskarsdóttir 8)8)8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 21:18:59 / katadk

?????? Óskarsdóttir

Halló gott fólk og takk takk fyrir allar kveðjurnar.  Síðan við komum heim er ekki hægt að segja að allt sé fallið í vanaleg horf því það eru smá breytingar að fara úr tveimur í þrjá á heimili:haha:.  Hún virðist bara nokkuð sátt við okkur, allavegana enn sem komið er;).  Farin að drekka vel og sofa lengri dúra í senn.  Það er svona smá búið að raska svefnvenjum okkar en því er bara tekið með mikilli gleði.  Komum til með að dæla inn myndum á barnaland.is á albúm Nýfædd, þessa vikuna, svo koma ný albúm.............en það eru allavega nýjar myndir þar.

Óskar og Kata

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 12:39:39 / katadk

5.4.3.2.1 KOMIN!!!!!

Hæ hæ allir og hjartans þakkir fyrir allar kveðjurnar, við vorum að lenda heima og er verið að vinna í að henda inn myndum.  Segjum sögu síðar.
Kv. Óskar, Kata og Óskarsdóttir.

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 21:30:04 / katadk

Maí barn?

Halló gott fólk:(  Ég er nú ekki þekktur fyrir að vera mjög þolinmóður og á frekar erfitt með að bíða með hlutina, þess þá heldur þegar að búið er að gefa manni ákveðna dagsetningu8|.  Núna eru ljósmæður komnar í sama flokk og veðurfræðingar:haha: ekkert að marka þetta fólk;)  Þessir dagar frá 7.apríl eru búnir að vera langir og þegar að Kata hefur hringt í mig er það fyrsta sem ég spyr um hvort ég eigi að brenna heim:haha:.

En að allt öðru, þá vorum við að fá nýjan nágranna sem flutti ekki fyrir löngu, og ekki löngu eftir fór maður að taka eftir að þetta var ekki venjulegt heimili8| (ekki að ég sé eins og kallinn á Hulvej), það er alltaf partý þar og mjög mikill umgangur, menn koma og stoppa stutt við, sumir fá að fara inn og öðrum er tekið á móti í tröppunum fyrir utan (enn og aftur, ég er ekki eins og kallinn á Hulvej) er bara búinn að vera vinna úti garði og hér fyrir utan.  Og svo í dag þegar að ég var kominn heim úr vinnunni voru tveir menn hér fyrir utan og sá maður strax að þetta var danska fíknó, þótt að þeir væru óeinkennisklæddir, stuttu síðar eru tveir "pretty boys"(þetta eru danskir hnakkar, ljósabrúnir og stífgelaðir) leiddir í járnum út í ómerktan bíl, því næst fór löggi í nýfilmaðan Audi og leitaði þar og svo aftur upp í íbúðina, á meðan sitja hnakkarnir í járnum í fíknóbílnum:haha::haha::haha:.

Alltaf fjör á Nygade. 

Hilsen Óskar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 10:28:29 / katadk

Takk fyrir kveðjurnar gott fólk...

.........ekkert að gerast enn, sit bara og slaka á ........eða reyni að slaka á, er ótrúlega eirðalaus og spái í öllum verkjum sem koma hvort eitthvað sé að gerast núna:lol::lol::lol:.  En gott að eiga góða vini og ættingja sem hugsa til manns.........takk elskurnar.  Jæja, ætla að reyna láta tímann líða fljótar8|

Kata á klukkunni.

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 08:01:43 / katadk

The day...

....og ekkert að gerast;);)

» 9 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 09:11:32 / katadk

Bið....

....er erfið.  Og möguleiki á að þurfa að bíða kannski tvær vikur í viðbót er ótrúlega erfitt.  Sérstaklega þar sem allt er tilbúið og ekkert til fyristöðu að þetta litla kríli komi og kíki á heiminn.  Ég kíkti til ljósmóður í gær og var hún bara sátt, þetta var frábær fundur þar sem hún var gjörsamlega í skýjunum yfir þessu öllu saman.  Barnið búið að skorða sig alveg......"pikk fast" eins og hún sagði, það sparkaði kröftulega tilbaka þegar hún skoðaði bumbuna, blóðþrýstingur, þyngd og allt annað í perfect standi og hún sagði að stærðin ætti að vera bara vísitölu.....................ekkert of stórt barn þarna á ferð. 

Við erum búin að ná í vagninn, vaggann komin í hús (47 ára gömul, ekkert smá sæt), búið að pakka í tösku, er að hlaða í myndavélarnar og bílstóllinn hennar Önnu fenginn að láni.........var nú reyndar í láni hjá henni Stínu skvísu en hún var svo sæt að láta okkur fá hann því litla prinsessan hennar, hún Kamilla orðin of stór í hann.........takk fyrir það, dúlla.  Svo nú sit ég bara og hvíli mig fyrir átökin.

Svo er nottlega það nýjasta,  skólinn hjá Óskari frestast aðeins því bankinn vildi ekki ábyrgjast fyrir láni vegna þess að útgjöldin hjá okkur eru of há miðað við tekjur, af því að húsið er ekki selt..........sem gæti auðvitað tekið svolítin tíma.  En nú er bara meiri tími til að stefna að þessu og möguleiki á skipuleggja betur.  

Þetta er orðið of langt..........hilsen

Kata skata með bumbu
 

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 09:47:52 / katadk

SÆLL.......

....VIKA EFTIR:haha:

» 9 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 10:07:27 / katadk

Gleðilega Hátíð

...Ég sit hérna nánast afvelta ennþá, eftir kræsingar í barnaafmæli í gær.  Hún Sunna litla, þeirra Önnu og Gísla, varð 2.ára..........já, tíminn flýgur.........Við sátum í góðra vina hópi fram eftir kvöldi og fékk ég meðal annars spáð fyrir mér í bolla...........og úr því kom að þessi fæðing á að ganga fljótt og vel fyrir sig og ég þurfi ekki að bíða eftir neinu:haha::haha:.....krossa fingur.   Og já, svo megum við eiga von á öðrum skrípaling fljótlega eftir þennann:lol::lol::lol::lol:. ÚFF

Okkur líður mjög vel og getum varla beðið lengur.  Krílið "kvartar" yfir plássleysi;) og fæ ég að kenna á því í rifbeinum og mjaðmabeinum........bara gaman af því.  Fyndið hvað síðasti mánuðurinn er hálf skrítinn...........það er gífurlegur spenningur, mikil þreyta eftir ekki neitt og svo stanslausar hreyfingar og mikill hiksti í krílinu sem ég hristist nánast öll til við:haha::haha:...........og nottlega endalausar WC ferðir og svo "bólgna" ég út eins og blaðra ef ég er búin að borða of kryddaðan mat.........en það fer jafn fljótt aftur, sem betur fer. 

Svo eru það bara páskarnir og páskaegginn brotin og gætt sér á ..........mitt egg reyndar brotnaði víst í sendingunni........ekki Óskars.......vildi hann meina!  En takk elsku Sirrý, fyrir góðgætið. 

Góða og mettaða hátíð

Hilsen Kata, Óskar og kríli

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 15:02:11 / katadk

Spennandi tímar framundan....

Þá eru það stóru fréttirnar.....Óskar kallinn komst inn í þyrluskólann og byrjar í júní8|8|8|.  Langþráður draumur hjá elskunni minni er vonandi að rætast, eigum eftir að fá bankagaranti um lán fyrir skólagjöldunum og þá fljúgum við af stað.  Skólinn er í Billund og er það ekki nema um 40.mín héðan.  Svo nottlega er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn á leiðinni, ekki nema rétt um mánuður eftir (ef ég geng ekki mikið framyfir) og við orðin ansi óþreyjufull.:d:d.  Svo nú er bara nóg að gera að "arisera" húsa- og fyritækjamálum því næstu tvö árin verðum við fátækur námsmaður og kvinde á barseli:lol::lol:.  Svona erum við í hnotskurn, allt gerist núna og allt í einu.8)8). ....................þannig lukkast allt hjá okkur, best að gera þetta undir pressu, öðruvísi er það ekki skemmtilegt og spennandi. 

Fjölskyldan kemur síðan um mánaðarmótin apríl-maí og ætlum við allavega að gefa krílinu nafn þá og jafnvel að skíra.  Skemmtilegra að gera þetta svona með fjölskyldunni, eiga góðan dag saman.  Þannig að það er nánast alveg úr sögunni að koma til Íslands í sumar, þar sem að Óskar verður í stífu námi. 

Ég er komin í mömmuklúbb sem hittist einu sinni í viku og er það alveg að gera sig, allar með annað barn (komið eða á leiðinni) og fæ ég allar reynslusögurnar beint í æð, og gott að geta spurt og ráðið sig við reyndar mæður;);).  Við erum sex stúlkukindurnar og er ein með fimm mánaða gamla skvísu, ein nýbúin að eiga lítinn prins, sú þriðja komin nokkra daga framyfir, ég í apríl og hinar tvær eiga í sumar.  Þá er bara að bíða og vona að Danmörk bjóði upp á sólríka göngudaga í sumar.8)8)8)8)

HIlsen Kata og bumba

» 11 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 19:25:14 / katadk

Takk fyrir okkur!

1000 þakkir fyrir FREYJUKARMELLURNAR:haha::haha:.........Þú ert frábær Hafdís að redda þessu og skórnir eru bara flottir, mange tak. Það var mjög gaman að koma heim úr vinnunni í dag og opna póstkassann, sem var fullur af ruslpósti og svo feitu umslagi frá Íslandi og viti menn, þegar að það var opnað kom í ljós lakkrísreimar, ostar litlir sætir babyskór og auðvitað freyjukarmellur;) , alveg ótrúlegt hvað þarf lítið til að gleðja mann svona á föstudegi.



Og já ég er að verða PABBI eftir 38 daga og ekki degi seinna:haha:

Hilsen Óskar

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 14:38:24 / katadk

MIG....

......LANGAR Í FREYJUKARAMELLUR:haha:

ÓSKAR

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 18:59:30 / katadk

Hæ hæ...

......komin tími á blogg hér, held ég bara.  Þeir hjá blog.central eru búnir að breyta soldið hjá sér og betrumbæta að mér finnst.  Ég gat allavega sett inn núna svona baby niðurteljara, voða sniðugt...............hérna í hægra horninu...............................»»»»

Ekki mikið að frétta af okkur, Óskar jú orðinn 31.árs.....átti afmæli í gær og gerðum við okkur smá kaffiglaðan dag........ég gerði heitann rétt og afmælisköku og Blöndalsfamily og Toni og Ásdís kíktu við. 

Búið er að setja upp grindverk til þess að loka af bakgarðinn hjá okkur og erum við að fara á fimmtudag í kommúnuna og kvarta:^)............bara fúskaralega og "dansklega" gert...........það er í fyrsta lagi alltof lágt miðað við fyrra grindverk og svo er svona 60 cm gap að neðan að hluta..............OG svo ofan á allt saman þá mokuðu þeir öllu saman inn í garðinn hjá okkur8|8|

........Og já ég held ég sé að springa8|

Kata og mjög hresst bumbukríli;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 18:36:14 / katadk

Já við erum á lífi.

Þessi blessaða færsla er búin að fá að standa helvíti lengi.  Allt er við það sama hér hjá okkur, Kata stækkar og stækkar, og er ekki hægt að segja annað en að hún er bara helvíti heppin að sleppa við alla kvilla sem geta fylgt meðgöngu.  Hún er byrjuð í Yoga og eru tvær íslenskar með henni þar.

:frown:............... ég hef ekkert að segja, slaufa þessu hér8|:haha:

...Ég tek þá við...........Já ég er byrjuð í Yoga og er það algjör snilld, líður þvílíkt vel alltaf eftir á.  Og barnið lætur vel á sér kræla, hreyfir sig ótrúlega mikið......þannig að bumban er gjörsamlega á fleygi ferð........oft meira en á myndbandinu sem við settum hér inn.........og ég er ekki að ýkja..........þetta er ótrúlega mikið stundum.  Og já með þessa kvilla, nokkrar sem við þekkjum eru að glíma við grindagliðnum og bjúg og svoleiðis og tel ég mig mjög heppna að sleppa við þetta.  Mig líður rosalega vel og er meira segja klemmda taugin, sem gerði það að verkum að framanverð lærin dofnuðu og soldið mikill sársauki fylgdi með, er nánast farið eftir að ég byrjaði í Yoga......bara fínt8).

Nú nenni ég heldur ekki meir

Hilsen Kata...........og Óskar

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 53148